Um okkur

Um Okkur

Um okkur - Breakout Reykjavík

Breakout Reykjavík er nýr vettvangur fyrir þá sem sækjast eftir ævintýrum, áskorunum og skemmtilegri samvinnu. Við bjóðum upp á escape room leiki þar sem hópar hafa 60 mínútur til að leysa ráðgátur, finna vísbendingar og vinna saman að því að sleppa út.

Hjá okkur er upplifunin í forgrunni. Við viljum að hver leikur sé ekki bara skemmtun – heldur ferðalag inn í aðra veröld. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á innlifun, sögur og smáatriði. Hvert herbergi er hannað með vandaðri sögu, einstökum leikmunum og þrautum sem krefjast bæði rökhugsunar og samvinnu.

Við erum sannfærð um að escape rooms henta öllum – hvort sem þú kemur með vini, fjölskyldu, vinnufélaga eða ferðamannahóp. Leikirnir okkar eru fjölskylduvænir, en geta líka verið krefjandi fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt og öðruvísi.

Breakout Reykjavík er staðsett í hjarta borgarinnar og við erum stolt af því að geta boðið bæði upp á staðbundna leiki í húsnæði okkar og færanlega leiki sem við komum með til ykkar. Þannig getur þú valið hvort þú vilt upplifa stemninguna hjá okkur eða fá ævintýrið heim í stofu, í afmæli eða á vinnustaðinn.

Markmið okkar er einfalt: Að skapa ógleymanlega upplifun þar sem fólk lærir að vinna saman, prófar að hugsa út fyrir rammann og skapa minningar sem endast lengi.

Komdu með hópinn þinn, spilið leikinn – og sjáið hvort þið náið að sleppa út áður en tíminn rennur út.

Scroll to Top