breakout
60 mínútur...komist þið út?
Upplifunin
Breakout Reykjavík býður upp á ógleymanlega upplifun fyrir hópa af öllu tagi.
60 mínútur til að leysa þrautir, vinna saman og komast út.
Leikirnir
Skoðaðu leikina okkar
Dularfullt borðspil gleymdist á háaloftinu
Áður en þið heimsóttuð gamla húsið var ykkur sagt frá hljóðum á háaloftinu. Fjölskyldan sem fór þangað síðast hvarf sporlaust – en það stöðvaði ykkur ekki.
Lokuð í dýflissu brjálæðings
Þið vaknið í myrkri, hlekkjuð í dýflissu brjálæðings. Allt í kringum ykkur eru þrautir, gildrur og vísbendingar – og loforð um að bara þeir klárustu muni lifa af.
Yfirgefin lest geymir leyndarmál
Þið hafið fundið lest sem var yfirgefin eftir örlagaríkar tilraunir vísindamannsins Dr. Adam. Lestin stendur eftir ryðguð og þögul – en vélin býr enn yfir leyndarmálum.
Leyndarmál Óðins, Þórs og Loka bíða...
Leikmenn verða að hópi víkinga sem þurfa að takast á við áskoranir sem norrænu goðin skildu eftir. Þrautirnar tengjast daglegu lífi víkinga, árásum og trú þeirra. Ekki þarf að kunna sögu goðanna til að klára leikinn – en áhugamenn munu finna margar tilvísanir í víkingaöld.
ATH: Víkingarnir er einn af okkar færanlegu leikjum sem er þó einnig hægt að spila hjá okkur.
Leitin að hinum goðsagnakennda fjársjóði
Fjórir goðasagnakenndir sjóræningjar földu dýrmætustu fjársjóði sína í útskornum trékistum, hver þeirra var varin með þrautum og dularfullum gripum. Þið og hópurinn ykkar hafið fundið þessar kistur – en til að eignast fjársjóðinn þurfið þið að sanna ykkur.
ATH: Sjóræningjarnir er einn af okkar færanlegu leikjum sem er þó einnig hægt að spila hjá okkur.
Hvernig virkar Escape Room?
Escape Room er ekki bara leikur heldur upplifun þar sem þú verður hluti af sögunni. Þrautir, ráðgátur og adrenalín frá upphafi til enda.
Breakout Reykjavík er frábær skemmtun, hvort sem er með vinum, fjölskyldu eða vinnufélögum.
1. Þið eruð læst inni
Hurðin lokast á eftir ykkur og leikurinn hefst.
2. Klukkan tifar
Hver sekúnda skiptir máli. Vinnið saman og nýtið tímann vel.
3. Sökkvið ykkur í söguna
Við hjá Breakout Reykjavík leggjum okkur fram við að búa til vandaða og skemmtilega leiki sem draga þig algjörlega inn í söguna
4. Brjótist út
Vinnið saman, leysið þrautirnar og sleppið út áður en tíminn rennur út!
Hafa samband
Hafa samband
Við hjá Breakout Reykjavík erum alltaf til staðar til að svara spurningum og veita nánari upplýsingar. Ef þú hefur áhuga á að bóka, skipuleggja viðburð eða einfaldlega fræðast meira um leiki okkar, ekki hika við að hafa samband.
Símanúmer:
Sendu okkur skilaboð
Ert þú með spurningu til okkar, langar að bóka leik eða skipuleggja viðburð? Fylltu út formið hér að neðan og við svörum þér eins fljótt og auðið er.
Bókaðu okkur til þín
Við bjóðum upp á flytjanlega escape leiki sem henta fyrir hvers kyns viðburði.
Leikirnir koma í sérstökum kössum sem við setjum upp og kynnum fyrir hópnum áður en leikurinn hefst.
Þú getur valið að:
Spila leikinn í okkar rými
Bóka okkur til þín fyrir afmæli, starfsmannapartý eða annan viðburð
Leikirnir okkar taka 2-8 þátttakendur, En við mælum með 4-5 til að fá sem besta upplifun.
Þið hafið 60 mínútur til að leysa þrautirnar og sleppa út – en komdu aðeins fyrr til að fá kynningu áður en leikurinn hefst.
Já, en við mælum almennt með að þátttakendur séu 12 ára og eldri. Yngri börn þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
Nei! Leikirnir okkar eru bæði á íslensku og ensku.
Starfsfólkið okkar fylgist með og getur gefið ykkur vísbendingar ef þið þurfið á hjálp að halda
Já! Við bjóðum bæði upp á leiki í okkar húsnæði og flytjanlega leiki sem við komum með á staðinn. Hafðu samband í gegnum info@breakoutreykjavik.is.
FAQ
Algengar spurningar
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um leiki okkar, bókanir og upplifunina almennt. Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu, endilega hafðu samband við okkur og við hjálpum þér.