Saw – Dýflissan

Saw – Dýflissan

Lokuð í Dýflissu Brjálæðings...

Verð

18+: 6.990 kr. 6-17: 4.990 kr.

Dýflissan - Leikur lífs og dauða

Þið vaknið í myrkri, hlekkjuð í dýflissu brjálæðings. Allt í kringum ykkur eru þrautir, gildrur og vísbendingar – og loforð um að bara þeir klárustu muni lifa af.

Í Dýflissunni skiptir hver sekúnda máli og allar ákvarðanir gætu verið þær síðustu. Þú og liðið þitt verðið að halda rónni, leysa þrautirnar og komast út innan 60 mínútna.

Dýflissan er spennandi leikur fyrir þá sem vilja taka áhættu og fá adrenalínið á fullt. Ertu klárari en brjálæðingurinn eða endar þú sem enn eitt fórnarlamb hans?  

Hægt er að spila Dýflissuna sem tveggja manna hópur en fyrir bestu upplifunina mælum við með 4+ þátttakendum.

Þátttakendur: 2-8

Erfiðleikastig: 80%

Hræðslustig: 90%

Lágmarksaldur: 12

Tími: 60 Mínútur

Scroll to Top